Hlaupahópurinn 550 Rammvilltar stendur fyrir spennandi utanvegahlaupi í fallegu umhverfi Skagafjarðar! Þetta er einstakt tækifæri til að njóta náttúrunnar, hreyfa sig og eiga góðan dag með fjölskyldu og vinum.
The 550 Rammvilltar running group is organizing an exciting trail race in the beautiful surroundings of Skagafjordur. This is a unique opportunity to enjoy nature, get moving and have a great day with family and friends.
Fyrsti kafli hlaupsins verður meðfram Sauðánni í gegnum Litla Skóg, en hann er eitt af kennileitum Sauðárkróks. Þegar hlaupið er upp úr skóginum liggur leiðin upp og áleiðis í átt að fjallinu Molduxa. Sú leið býður upp á gullfallega náttúru. Stórfenglegt útsýni í skóglendi og melum og allt þar á milli. Á leiðinni blasir við allur fjörðurinn og þar með eyjarnar Drangey og Málmey. Þegar komið er að Molduxa er hlaupið til hægri (norður) og nánast alveg hringinn í kringum hann, þar til komið er að gönguleið upp á Molduxa. Farið er upp að hæsta punkti (750m) þar sem ber að líta stórfenglegt útsýni í allar áttir. Leiðin liggur svo niður aftur og er fylgt slóða að drykkjarstöð. Eftir hana liggur leiðin niður svokallaðar Kimbastaðagötur í gegnum lyng, móa og mela og blasir við fyrrnefnd eyjasýn, ásamt útsýni yfir Héraðsvötnin og fallegar sveitir Skagafjarðar. Síðustu fjórir kílómetrarnir eru svo teknir í Skógarhlíðinni sem er skógi vaxin leið með fjörlegu fuglalífi og endar leiðin svo aftur ofan í Litla Skógi þar sem endamarkið liggur við upphaf skógarins.
Starting close to the regional highschool FNV the route goes around Mt. Molduxi 750 m in the backyard of Saudarkrokur and then up to the top from where there is a magnificient view over the islands of Skagafjordur. From the top the route goes down the path Kimbastadagotur and through the forested Skogarhlid, all the way down to the startline.