Event Information

 Bláskógabyggð, Iceland
14 June 2026

Bláskógaskokk 2026

Bláskógaskokk HSK fer fram 14. júní Bláskógaskokk HSK verður haldið sunnudaginn 14. júní 2026 og hefst kl. 11:00. Skráning Skráning er opin á https://netskraning.is/blaskogaskokk/ . Ef fólk ætlar að tryggja sér far í rútu þarf að forskrá sig fyrir kl. 18:00 föstudaginn 12. júní. Keppendur þurfa að mæta við Fontana á Laugarvatni þar sem þeir stað

Bláskógaskokk 8 km

ITRA Points
Itra Images
Mountain Level
  1
Finisher Level
  220
National League

Course details

 Race Date: 2026/06/14
 Start Time: 11:00:00
 Participation: Solo
 Distance: 8.00
 Elevation Gain: +160
 Elevation Loss: -230
 Time Limit: 1:45:0
 Number of Aid Stations: 1
 Number of Participants: 200
 
 

About the Race

Skráning er opin á https://netskraning.is/blaskogaskokk/ til kl. 10:00 sunnudaginn 14. júní. Ef fólk ætlar að tryggja sér far í rútu þarf að forskrá sig fyrir kl. 18:00 föstudaginn 12. júní. Þátttökugjald 7.000 kr fyrir 17 ára og eldri (fædd 2009 og fyrr) 1.000 kr fyrir 16 ára og yngri (fædd 2008 og síðar) Keppendur geta nálgast keppnisnr. í Fætur Toga Höfðabakka 3 Reykjavík föstudag 12. júní milli kl. 14 og 18. Einnig verða númer afhent í Fontana á Laugarvatni frá kl. 9:00 á keppnisdegi. Hlaupurum sem fara með rútu verður ekið frá Laugarvatni að rásmarki við Gjábakka (10 mílur) og á Laugardalvöllum (5 mílur) kl. 10:15. Hlauparar fá frítt í Fontana að hlaupi loknu gegn framvísum hlaupanúmers. Hlaupaleið 10 mílna hlaupið hefst við Gjábakka, austan Þingvallavatns og hlaupið eftir gamla Gjábakkaveginum að Laugarvatni. 5 mílna hlaupið er á sömu leið, byrjar á Laugardalvöllum og endar á Laugarvatni. Ein drykkjarstöð er á lengri hlaupaleiðinni. Engin bílaumferð verður á meginhluta leiðarinnar. Vegalengdir 10 mílur (16,09 km) og 5 mílur (8,05 km). Tímataka er með flögum. Flokkaskipting Bæði kyn. 16 ára og yngri 17-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70 ára og eldri. Verðlaun Allir þátttakendur sem ljúka hlaupunum fá verðlaunapening. Fætur Toga veita verðlaun fyrir fyrsta karl og fyrstu konu og kr. fimmtíu þúsund inneign fyrir brautarmet í báðum vegalengdum. Fontana veitir vegleg verðlaun fyrir HSK-met fullorðinna í báðum vegalengdum. Einnig verða útdráttarverðlaun. Verðlaunaafhending verður við endamarkið. Þau sem vilja keppa til HSK-verðlauna þurfa að vera af starfssvæði sambandsins og skrá sig sem HSK-félagi við skráningu í hlaupið.